Lyfjagreiðslunefnd hefur gert verðsamanburð á 36 af 50 veltuhæstu pakkningum sem Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiddu fyrir landsmenn árið 2011. Verðsamanburðurinn er gerður á lyfjaverðskrám desember 2012 í viðkomandi norðurlanda, bæði á heildsöluverði og smásöluverði.
Sjá nánar hér:
Verðkönnun á heildsöluverði
Verðkönnun á smásöluverði
Hafa ber í huga að samanburðurinn endurspeglar lyfjanotkun á Íslandi en ekki hvaða lyf eru notuð mest í viðmiðunarlöndum Íslands. Þau eru Danmörk, Finnland, Noregur, Svíþjóð.
Einnig að þegar um samheitalyf er að ræða er tekið samskonar lyf sama framleiðanda, en ekki reiknað meðalverð í viðkomandi landi.
Nánari upplýsingar veitir formaður Lyfjagreiðslunefndar, Rúna Hauksdóttir, [email protected], beinn sími 553-9050
|