lgn.is - 15.04.2013 Leyfisskyld lyf uppfærður listi.
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

15.04.2013 Leyfisskyld lyf uppfærður listi.
15.04.2013 - 15.04.2013 Leyfisskyld lyf uppfærður listi.

Tilkynning frá lyfjagreiðslunefnd – 15. apríl

Lyfjagreiðslunefnd hefur í samráði við sérfræðinga frá Landspítala og Sjúkratryggingum Íslands, undirbúið ákvörðun um hvaða lyf skuli teljast leyfisskyld þegar lög nr. 45/2012, um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lyfjalögum nr. 93/1994, með síðari breytingum, taka gildi. 

Í 5. gr. laganna  eru leyfisskyld lyf skilgreind sem lyf sem eingöngu eru notuð í samræmi við klínískar leiðbeiningar og eru að jafnaði kostnaðarsöm og vandmeðfarin.

Hafi markaðsleyfishafi athugasemdir við fyrirhugaða leyfisskyldu lyfja skulu þær berast  lyfjagreiðslunefnd innan 2 vikna frá dagsetningu tilkynningar. Berist engar athugasemdir innan frestsins munu þessi tilteknu lyf verða leyfisskyld frá og með þeim degi er lögin taka gildi. Listi yfir leyfisskyld lyf mun verða birtur á heimasíðu lyfjagreiðslunefndar um leið og lög nr. 45/2012 taka gildi.

Meðfylgjandi er upptalning á lyfjum sem bætt hefur verið við svokallaðan A. lista sem birtur var með frétt nefndarinnar 14. desember 2012.

Eftirfarandi lyf voru samþykkt inn á A. listann sem leyfisskyld, Jevtana, Arzerra, Yervoy, Afinitor, Benlysta, Zytiga, Simponi.

Hér er uppfærður A-listi með þessum viðbótum.