Smásöluálagning lyfseðilsskyldra lyfja hækkar 1. janúar 2018
Lyfjagreiðslunefnd hefur tekið ákvörðun um hækkun á smásöluálagningu lyfja.
Frá 1. janúar 2018 til 31. desember 2018 verður verðlagning lyfseðilsskyldra lyfja sem hér segir, en ofan á heildsöluverð og álagningu bætist virðisaukaskattur (VSK):
Hámarksheildsöluverð: Smásöluálagning:
0 – 19.999 kr. 11,0% + 1.133 kr.
20.000 – 99.999 kr. 2,0% + 2.476 kr.
> 100.000 kr. 0,3% + 4.925 kr.
Um er að ræða 59 kr. hækkun á krónutöluálagningu í smásölu í fyrsta þrepi, 129 kr. hækkun í öðru þrepi og 256 kr. hækkun í þriðja þrepi. Afmörkun álagningarþrepa og prósentuálagning helst óbreytt. |