Lyfjagreiðslunefnd hefur samþykkt leyfisskyldu fyrir Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka við eftirfarandi ábendingu:
Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka er notað samhliða öruggu kynlífi til fyrirbyggjandi meðferðar fyrir útsetningu til að draga úr hættu á HIV-1 sýkingu sem smitast með kynlífi hjá fullorðnum í áhættuhópi.
Skilyrði fyrir leyfisskyldunni er að einungis læknar LSH með sérfræðiviðurkenningu í smitsjúkdómum ávísa Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka við ofangreindri ábendingu. Þeir, ásamt hjúkrunarfræðingum göngudeildar smitsjúkdóma á LSH, hafa umsjón með mati, meðferð og eftirfylgni einstaklinga á fyrirbyggjandi HIV-meðferð (PrEP), sbr.klínískar leiðbeiningar.
Klínískar leiðbeiningar fyrir Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka KL.
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á excel formi. Listi excel.
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á PDF formi. Listi PDF. |