lgn.is - 13.06.2019  Nýr formaður og framkvæmdastjóri lyfjagreiðslunefndar
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

13.06.2019 Nýr formaður og framkvæmdastjóri lyfjagreiðslunefndar
13.06.2019 - 13.06.2019 Nýr formaður og framkvæmdastjóri lyfjagreiðslunefndar

Heilbrigðisráðherra hefur skipað Evu Ágústsdóttur, lyfjafræðing, nýjan formann lyfjagreiðslunefndar frá og með 1. júní 2019.

Eva lauk kandídatspróf í lyfjafræði frá Háskóla Íslands árið 1992, diplómaprófi í viðskipta- og rekstrarnámi við Endurmenntun HÍ 1998, viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu frá HÍ 2014 og meistaranámi í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá HÍ árið 2017.

Eva hóf störf hjá lyfjagreiðslunefnd í nóvember 2018 sem staðgengill formanns lyfjagreiðslunefndar.  Fram að því starfaði hún m.a. í Sjúkrahúsapóteki Landspítala frá 2006-2015 og þar áður hjá Lyfjastofnun.

Lyfjagreiðslunefnd býður Evu velkomna til starfa.