Lyfjafræðingur -Lyfjagreiðslunefnd
Lyfjagreiðslunefnd óskar eftir að ráða lyfjafræðing til starfa. Um framtíðarstarf er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi. Starfshlutfall getur bæði verið fullt starf eða hlutastarf.
Helstu verkefni: Útgáfa verðskrár.
Afgreiðsla verð og greiðsluþátttöku umsókna
Sérverkefni
Hæfniskröfur :
- Lyfjafræðingur
- Góð tölvukunnátta
- Þekking og reynsla úr opinberri stjórnsýslu, apótek og/eða heildsölu æskileg
- Ensku, dönsku eða sænsku-kunnátta kostur
- Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði, þjónustulund og áhugi á að þroskast í starfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar veitir Rúna Hauksdóttir Hvannberg formaður lyfjagreiðslunefndar í síma 5539050. Sjá einnig heimasíðu Lyfjagreiðslunefndar: www.lgn.is
Skriflegum umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar með tölvupósti til [email protected] eða til Lyfjagreiðslunefndar, v.t. Rúna Hauksdóttir, formaður, Vegmúla 3, 108 Reykjavík fyrir 28. mars 2011.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. |