Lyfjagreiðslunefnd hefur tekið ákvörðun um hækkun á smásöluálagningu lyfja.
Frá 1. janúar 2019 til 31. desember 2019 verður verðlagning lyfseðilsskyldra lyfja sem hér segir, en ofan á heildsöluverð og álagningu bætist virðisaukaskattur (VSK):
Hámarksheildsöluverð: Smásöluálagning:
0 – 19.999 kr. 11,0% + 1.179 kr.
20.000 – 99.999 kr. 2,0% + 2.576 kr.
> 100.000 kr. 0,3% + 5.123 kr.
Um er að ræða hækkun krónutöluálagningarinnar um 4,02%. Krónutöluálagning álagningarþrepanna þriggja hækkar sem hér segir: Um 46 kr. í fyrsta þrepi, eða úr 1.133 kr. í 1.179 kr., í öðru þrepi hækkar hún um 100 kr. og því úr 2.476 kr. í 2.576 kr. og í þriðja þrepi hækkar hún um 198 kr. eða úr 4.925 kr. í 5.123 kr. Afmörkun álagningarþrepa og prósentuálagning helst óbreytt. |