02.11.2012 Nýtt vörunúmer fyrir Efexor Depot, hart forðahylki, 37,5 mg, 7 stk.
Til að koma í veg fyrir skort á Efexor Depot, hart forðahylki, 37,5 mg, 7 stk. hefur Lyfjastofnun, að höfðu samráði við lyfjagreiðslunefnd, veitt leyfi til sölu lyfsins í pakkningu sem ber annað norrænt vörunúmer en það sem er tilgreint í lyfjaskrám.
Nýja vörunúmerið fyrir Efexor Depot, hart forðahylki, 37,5 mg, 7 stk. er 09 74 98 og kemur í stað eldra vörunúmers 02 02 77.
Heimildin gildir út nóvember 2012. Frá 1. desember 2012 verður nýja norræna vörunúmerið í lyfjaskrám. |