Á 189. fundi lyfjagreiðslunefndar þann 6. maí s.l. var ákveðin 7% hækkun á fasta krónutölu smásöluálagningar og tekur hún gildi 1. júní n.k.
Krónutöluálagning fer við þetta úr 780 kr. í 835 kr. í lægra þrepi og úr 2.028 kr. í 2.170 kr. í hærra þrepi. Prósentuálagning er óbreytt
Hérlendis eru tvö þrep í smásöluálagningu lyfseðilskyldra mannalyfja.
Lægra þrepið eru lyf með heildsöluverð 1-11.999 krónur og hærra þrepið eru lyf yfir 12.000 krónum:
Eftir 1.6.2013
|
Prósentu álagning
|
Föst krónutala
|
1-11.000 kr.
|
9%
|
835 kr.
|
12.000 kr. >
|
0%
|
2.170 kr.
|
Við ákvörðun á hækkun á smásöluálagningu lyfja voru hafðar að til hliðsjónar þær hækkanir sem orðið hafa á annarri heilbrigðisþjónustu.
Breytingin hefur þau áhrif að gera verður samsvarandi breytingu í 7. gr. reglugerðar nr. 313/2013 er varðar skilyrta greiðsluþátttöku ákveðinna lyfja, með gildistöku 1. júní.
Verði á einingu í 7. gr. reglugerðar nr. 313/2013 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði, verður breytt í lyfjaverðskrá fyrir júní á þann hátt að sömu lyf verða með greiðsluþátttöku og í verðskrá fyrir maí. |