Lyfjagreiðslunefnd hefur gert verðsamanburð á 36 af 43 kostnaðarsömustu pakkningum sem Sjúkratryggingar Íslands greiddu í árið 2013.
Verðsamanburðurinn er bæði á heildsölu- og smásöluverði og byggir á verðskrám septembermánaðar 2014 á Íslandi og í samanburðarlöndunum, sem eru Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Finnland.
Sjá nánar hér:
Verðsamanburður á heildsölu- og smásöluverði desember. PDF
Verðsamanburður á heildsölu- og smásöluverði desember. Excel
Hafa ber í huga að samanburðurinn endurspeglar lyfjanotkun á Íslandi en ekki hvaða lyf eru notuð mest í samanburðarlöndum Íslands.
Nánari upplýsingar veitir formaður lyfjagreiðslunefndar, Rúna Hauksdóttir, [email protected], beinn sími 553-9050.
|