lgn.is - 15.09.2015 Breyting á smásöluálagningu lyfseðilskyldra lyfja 1. október 2015.
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

15.09.2015 Breyting á smásöluálagningu lyfseðilskyldra lyfja 1. október 2015.
15.09.2015 - 15.09.2015 Breyting á smásöluálagningu lyfseðilskyldra lyfja 1. október 2015.

Á 231. fundi lyfjagreiðslunefndar þann 14. september s.l. var samþykkt breyting á smásöluálagningu lyfja til að koma til móts við breytt afgreiðslufyrirkomulag S-merktra lyfja í apótekum. Ný smásöluálagning tekur gildi 1. október 2015.

Ákveðið var að hafa eins smásöluálagningu fyrir almenn lyf og S-merkt lyf þ.e. sérstök álagningarþrep fyrir S-merkt lyf falla niður.

Smásöluálagning fyrir bæði S-lyf og almenn lyf verður eftirfarandi:

  1. þrep 0 -19.999 kr.               11% +    868 kr.
  2. þrep 20.000 - 99.999 kr.        2% + 2.100 kr.
  3. þrep >100.000 kr.              0,3% + 4.000 kr.