Lyfjagreiðslunefnd framkvæmdi verðendurskoðun á öllum lyfseðilsskyldum lyfjum í lyfjaverðskrá eða samtals 2.951 vörunúmerum á árinu 2019. Áætlað er að verðendurskoðunin lækki lyfjakostnað um 756 milljónir kr. á ársgrundvelli. Ávinningurinn skiptist á milli Sjúkratrygginga Íslands, Landspítala og sjúklinga.
Nefndinni er ætlað skv. 7. gr. reglugerðar um lyfjagreiðslunefnd nr. 353/2013 að framkvæma reglulega verðendurskoðun og ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti.
Lyfjaverð á Íslandi er borið saman við lyfjaverð í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Verðsamanburður á almennum lyfjum byggist á meðalverði í viðmiðunarlöndunum fjórum en við verðsamanburð á sjúkrahúslyfjum er tekið mið af lægsta verði í sömu löndum.
Verðlækkanir í kjölfar verðendurskoðunar lyfjagreiðslunefndar á sjúkrahúslyfjum tóku gildi 1. apríl 2019. Áætlað er að lyfjakostnaður Landspítala lækki við það um 357 milljónir kr. á ársgrundvelli.
Verðendurskoðun á almennum lyfjum var skipt í tvo áfanga. Verðlækkanir vegna fyrri áfangans tóku gildi 1. júní 2019 og vegna seinni áfangans þann 1. október 2019. Áætlað er að lyfjakostnaður muni lækka vegna fyrri áfangans um 230 milljónir kr. og vegna seinni áfangans um 169 milljónir kr. á ársgrundvelli. Kostnaður vegna almennra lyfja mun því lækka um samtals 399 milljónir kr., sem skiptist á milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúklinga.
Allar upphæðir miðast við heildsöluverð með virðisaukaskatti.
Lyfjagreiðslunefnd þakkar gott samstarf við lyfjafyrirtæki í landinu til að ná fram þessum sparnaði bæði fyrir ríki og sjúklinga.
|