lgn.is - 17.04.2020  Undanþágulyf ekki lengur Z-merkt í undanþágulyfjaverðskrá
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

17.04.2020 Undanþágulyf ekki lengur Z-merkt í undanþágulyfjaverðskrá
17.04.2020 - 17.04.2020 Undanþágulyf ekki lengur Z-merkt í undanþágulyfjaverðskrá

Frá og með 1. maí nk. munu upplýsingar um Z-merkingu ekki birtast í undanþágulyfjaverðsskrá.

Varðandi markaðssett lyf þá veitir Lyfjastofnun lyfjagreiðslunefnd upplýsingar um hvort ávísun lyfja er bundin við sérfræðingsleyfi lækna, þ.e. hvort lyf falli undir svokallaða Z-merkingu. Upplýsingar þar að lútandi er því að finna í lyfjaverðskrá.  

Lyfjagreiðslunefnd, hefur í tilfelli lyfja án markaðsleyfis, óskað eftir umsögn Lyfjastofnunar varðandi það hvort eigi að sérfræðingsmerkja (Z-merkja) lyf sem birt eru í undanþágulyfjaverðskrá. Lyfjastofnun hefur nú ákveðið að veita nefndinni ekki lengur þessar umsagnir fyrir ný lyf sem birtast eiga í undanþágulyfjaverðskrá. Til að gæta samræmis í þessum upplýsingum hefur nefndin því ákveðið að fella út fyrirliggjandi upplýsingar um Z-merkingar og munu þær því ekki birtast í undanþágulyfjaverðskrá frá og með 1. maí nk.